Mexíkó og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld. Leikurinn hefst kl. 02:00 að íslenskum tíma. Íslenska landsliðið er að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni þar sem leikið er utan glugga.
Bein textalýsing frá leiknum
Níu leikmenn í byrjunarliði Íslands spila í Bestu deildinni, þar á meðal er Gylfi Þór Sigurðsson sem er með fyrirliðabandið.
Jóhann Berg Guðmundsson er einnig í byrjunarliðinu en hann er án félags og þá er Damir Muminovic í vörninni en hann gekk í vetur í raðir Grindavíkur í Lengjudeildinni.
Þrír leikmenn Íslandsmeistara Víkings eru í byrjunarliðinu en fjórir frá Breiðabliki. Tveir eru í Stjörnunni og einn úr ÍA.

Lestu um leikinn: Mexíkó 2 - 0 Ísland
Byrjunarlið Íslands
1. Anton Ari Einarsson (m) - Breiðablik
2. Karl Friðleifur Gunnarsson - Víkingur
4. Damir Muminovic - Grindavík
5. Guðmundur Kristjánsson - Stjarnan
6. Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik
7. Jóhann Berg Guðmundsson - Án félags
8. Guðmundur Þórarinsson - ÍA
9. Emil Atlason - Stjarnan
10. Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur
11. Helgi Guðjónsson - Víkingur
17. Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik
Athugasemdir