Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 16:35
Elvar Geir Magnússon
Hákon, Sverrir og Logi byrja - Albert hvíldur á bekknum
Hákon er í byrjunarliðinu.
Hákon er í byrjunarliðinu.
Mynd: EPA
Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason.
Mynd: EPA
Seinni leikirnir í umspili Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar fara fram í kvöld þar sem barist er um sæti í 16-liða úrslitum. Búið er að opinbera byrjunarliðin hjá liðunum sem spila 17:45.

Hákon Arnar Haraldsson er í byrjunarliði franska liðsins Lille sem þarf á sigri að halda gegn Rauðu stjörnunni eftir 1-0 tap á heimavelli.

Sverrir Ingi Ingason er í hjartanu í þriggja miðvarða kerfi hjá gríska liðinu Panathinaikos sem mætir Viktoria Plzen í Tékklandi en fyrri viðureignin endaði með 2-2 jafntefli.

Logi Tómasson og hans menn í tyrkneska liðinu Samsunspor eru með nauma 1-0 forystu gegn Shkendija frá Norður-Makedóníu. Logi er í byrjunarliðinu.

Albert Guðmundsson er hvíldur og byrjar á bekknum hjá ítalska liðinu Fiorentina sem er í góðum málum eftir öruggan 3-0 sigur á Jagiellonia í Póllandi í síðustu viku.

Fylgst er með öllum helstu leikjum í úrslitaþjónustu á forsíðu.

Evrópudeildin
17:45 Rauða stjarnan - Lille (1-0)
17:45 Ferencvaros - Ludogorets (1-2)
17:45 Plzen - Panathinaikos (2-2)
17:45 Stuttgart - Celtic (4-1)
20:00 Bologna - SK Brann (1-0)
20:00 Celta - PAOK (2-1)
20:00 Genk - Dinamo Zagreb (3-1)
20:00 Nott. Forest - Fenerbahce (3-0)

Sambandsdeildin
17:45 Celje - Drita FC (3-2)
17:45 Fiorentina - Jagiellonia (3-0)
17:45 Rijeka - Omonia (1-0)
17:45 Samsunspor - Shkendija (1-0)
20:00 AZ - Noah (0-1)
20:00 Crystal Palace - Zrinjski (1-1)
20:00 Lausanne - Olomouc (1-1)
20:00 Lech - KuPS (2-0)
Athugasemdir
banner
banner
banner