Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 01:20
Elvar Geir Magnússon
Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah til í að vera áfram
Powerade
Nnamdi Collins (til vinstri) er orðaður við ensk stórlið.
Nnamdi Collins (til vinstri) er orðaður við ensk stórlið.
Mynd: EPA
Salah er glaður til í að vera áfram hjá Liverpool.
Salah er glaður til í að vera áfram hjá Liverpool.
Mynd: EPA
Ungsirnið Sean Steur vekur áhuga enskra félaga.
Ungsirnið Sean Steur vekur áhuga enskra félaga.
Mynd: EPA
Það er næturvakt hjá Powerade slúðrinu þennan fimmtudaginn. Meðan við bíðum eftir að flautað verði til leiks í vináttulandsleik Mexíkó og Íslands skoðum við hvað ber hæst í slúðurheimum.

Þýski varnarmaðurinn Nnamdi Collins (22) hjá Eintracht Frankfurt hefur vakið áhuga frá Arsenal, Liverpool, Manchester City, Newcastle, Brighton og Brentford. (Teamtalk)

Egypski framherjinn Mohamed Salah (33) er glaður til í að vera áfram á næsta tímabili og þar með út samninginn hjá Liverpool ef ekki verður gengið frá sölu til Sádi-Arabíu næsta sumar. (Football Insider)

Þýski umboðsmaðurinn Volker Struth, sem vann með Florian Wirtz, segist hafa boðið þýska miðjumanninn til Real Madrid síðasta sumar, áður en Liverpool keypti hann á 116 milljónir punda frá Bayer Leverkusen. (Phrasenmaher)

Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro (34) vill halda áfram að spila í Evrópu og gæti Ítalía orðið hans næsti áfangastaður. (Sun)

Manchester United hyggst selja kamerúnska markvörðinn Andre Onana (29) í sumar en reiknar með að fá talsvert lægri upphæð en þær 50 milljónir punda sem félagið greiddi fyrir hann frá Inter 2023. (TalkSport)

Onana vill berjast fyrir því að sanna sig á ný sem aðalmarkvörður Manchester United þegar lánssamningur hans við Trabzonspor rennur út í sumar. Hann telur sig muna að fá tækifærið til að gera það. (Guardian)

Manchester United hefur náð samkomulagi við tyrkneska félagið um að selja því varamarkvörð sinn, Altay Bayindir (27), fyrir 4,3 milljónir punda í sumar. (Fanatik)

Borussia Dortmund hefur sett 60 milljóna punda verðmiða á miðjumanninn Felix Nmecha (25) en Chelsea og Manchester United hafa sýnt honum áhuga. (Metro)

Manchester United, Arsenal og Liverpool fylgjast grannt með þróun hollenska miðjumannsins Sean Steur (18) hjá Ajax. (TeamTalk)

Manchester United hefur enn ekki farið í formlegar viðræður við Kobbie Mainoo (20) um nýjan samning. (Sun)

Orlando City í bandarísku MLS-deildinni hefur boðið Antoine Griezmann (34) þriggja ára samning. Franski framherjinn mun ræða við Atletico Madrid um framtíð sína. (Fabrizio Romano)

Vonir Sunderland um að kaupa alsírska miðjumanninn Yacine Titraoui (22) frá Charleroi í Belgíu hafa aukist. Úlfarnir eiga ekki mikla möguleika þar sem þeir falla líklegast úr úrvalsdeildinni. (Sunderland Echo)

Verðmæti Victor Osimhen (27) hefur tvöfaldast síðan hann fór frá Napoli til Galatasaray að sögn Abdullah Kavukcu, varaforseta tyrkneska félagsins. (Goal)
Athugasemdir
banner
banner