Víkingur hefur fengið samþykkt tilboð í Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmann Kolding, og er hann að ganga í raðir Íslandsmeistaranna. Frá þessu er greint í Dr. Football þætti dagsins.
„Við vorum að fá tíðindi úr Víkinni, Víkingar hafa fest kaup á Jóa Bjarna. Þetta segja mínir menn í Fossvoginum, Jói verður leikmaður Víkings á næstu dögum," segir Hjörvar Hafliðason í þætti dagsins.
Jóhannes Kristinn hefur verið orðaður við Víking síðustu vikuna, en fyrstu fregnir tengdust mögulegri sölu á Valdimar Þór Ingimundarsyni frá félaginu. Valdimar er leikmaður Víkings, hafnaði tilboði sænska félagsins Kalmar fyrr í þessum mánuði.

Jóhannes Kristinn er uppalinn hjá KR og fór ungur út til Norrköping í Svíþjóð en sneri svo aftur í Vesturbæinn. Hann lék vel með KR fyrri hluta síðasta tímabils og var seldur til Kolding í Danmörku. Þar var hann ekki í stóru hlutverki og er nú aftur á heimleið.
Hann varð 21 árs í vikunni, er U21 landsliðsmaður og hefur bæði leikið sem hægri bakvörður og miðjumaður.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður út í Jóhannes í gær og kom sýnilega smá fát á hann. Spurningin var í tengslum við þá sögu að Jóhannes hefði verið á leið í Víking ef Valdimar færi út. Viðtalið má sjá hér að neðan og er spurningin um Jóhannes í lok viðtals.
Athugasemdir