Íslenska kvennalandsliðið er 1-0 undir gegn Evrópumeisturum Englands í hálfleik í undankeppni heimsmeistaramótsins á City Ground-leikvanginum í Nottingham.
Lestu um leikinn: England 2 - 0 Ísland
Eins og kannski við var að búast hefur íslenska liðið þurft að sinna mikilli varnarvinnu í leiknum.
Englendingar gætu hæglega verið þremur eða fjórum mörkum yfir í þessum leik en tréverkið hefur komið nokkrum sinnum til bjargar.
Lauren Hemp átti skalla í stöng áður en Lucy Bronze stangaði boltann í netið tíu mínútum síðar eftir fyrirgjöf Lauren James.
Bronze var nálægt því að gera annað mark stuttu síðar en í það skiptið fór skalli hennar í stöng.
Erfiður fyrri hálfleikur hjá þeim íslensku sem hafa ekki enn átt tilraun að marki Englendinga en það er vonandi að þær geti stillt saman strengi í hálfleik og reynt að sækja stig.
Hálfleikur:
England 1 - 0 Ísland
1-0 Lucy Bronze ('22 )
Lestu um leikinn
Athugasemdir



