Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
   þri 07. júní 2016 22:30
Kristín Hildur Ragnarsdóttir
Laugardalsvelli
Glódís: Stefnum á að halda hreinu út undankeppnina
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Glódís Perla Viggósdóttir átti enn einn glansandi landsleikinn þegar íslenska landsliðið vann auðveldan 8-0 sigur á Makedóníu á Laugardalsvelli í kvöld.

Íslenska liðið trónir á toppi riðilsins og hefur ekki enn fengið mark á sig í undankeppninni. Sæti í lokakeppninni er gott sem tryggt.

Lestu um leikinn: Ísland 8 -  0 Makedónía

„Við stefnum á að halda hreinu út alla undankeppnina. Það væri geggjað. Ef við gerum það þá erum við 100% komnar áfram og munum standa okkur vel í lokakeppninni líka."

„Við vissum það fyrirfram að við værum töluvert betri og það er flott að vinna leikinn 8-0 og halda hreinu. Það er jákvætt fyrir okkur."

Einungis tveir leikir eru eftir af undankeppninni og eru íslenska liðið með fullt hús stiga.

„Við eigum tvo erfiða leiki eftir. Við eigum eftir að spila við Slóveníu sem eru með gott lið og svo aftur Skotlandi. Það eru hörkuleikir eftir," sagði varnarmaðurinn, Glódís Perla.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner