Lamine Yamal hefur vakið mikla athygli hjá Barcelona en þessi 16 ára gamli framherji hefur þegar leikið 33 leiki fyrir félagið.
Hann hefur komið við sögu í öllum 23 leikjunum í spænsku deildinni á þessari leiktíð og skorað eitt mark og lagt upp fjögur.
Hann er með samning til ársins 2026 en Deco, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu segir að hann muni fá nýjan samning um leið og hann nær 18 ára aldri.
„Við höfum lagt mikið í hann. Hann hefur spilað sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið. Ég held að hann verði lengi hjá Barcelona. Hann er með samning og þegar hann verður 18 ára verður hann lengri," sagði Deco.
Athugasemdir



