Patrick Bamford, sóknarmaður Leeds, segist hafa upplifað mikla erfiðleika á síðasta tímabili. Hann varð fyrir miklu áreiti af hálfu stuðningsmanna Leeds er liðið átti í erfiðleikum í ensku úrvalsdeildinni.
Leeds féll á endanum en Bamford segir að staðan hafi orðið slæm utan vallar. Það slæm að hann þurfti að eyða samfélagsmiðlum sínum um tíma.
„Ég var alltaf á Twitter, þangað til um miðjan mars. Ég varð fyrir miklu áreiti og var fjölskyldu minni hótað. Dóttur minni var hótað," sagði Bamford í hlaðvarpi á vegum BBC.
Bamford klúðraði víti í 2-2 jafntefli gegn Newcastle í maí og þá varð ástandið gríðarlega slæmt. Ákveðnir aðilar komu heim til hans og áreittu hann og hans fjölskyldu þar.
„Félagið setti upp öryggisverði í kringum húsið um nóttina," sagði Bamford.
Leeds er í augnablikinu í þriðja sæti í Championship-deildinni en Bamford er búinn að skora þrjú mörk í 21 leik.
This is pretty extraordinary, and concerning. Football as a whole has real anger issueshttps://t.co/ScwAOGbelb
— Phil Hay (@PhilHay_) February 8, 2024
Athugasemdir




