Bjarki Steinn Bjarkason hefur framlengt samning sinn við Venezia á Ítalíu. Nýr samningur hans gildir til ársins 2027.
Bjarki er uppalinn í Aftureldingu en fór til ÍA árið 2018 áður en hann var seldur tveimur árum síðar til Venezia.
Bjarki er fjölhæfur leikmaður sem spilar oftast á kantinum en getur einnig leyst það að vera inn á miðsvæðinu og í bakverði.
Bjarki, sem er 23 ára gamall, hefur á þessu tímabili komið við sögu í 17 leikjum með Venezia í B-deildinni á Ítalíu og skorað eitt mark. Hann hefur þá jafnframt lagt upp eitt mark með liðinu.
Þessi öflugi leikmaður á að baki tvo A-landsleiki fyrir Íslands og fjölda leikja fyrir yngri landsliðin.
Bjarki Bjarkason signs contract renewal https://t.co/22qtyOK0Pf#ArancioNeroVerde?????????? pic.twitter.com/C82WKJ8z3C
— Venezia FC (@VeneziaFC_EN) February 8, 2024
Athugasemdir


