Bournemouth hefur virkjað ákvæði í samningi kólumbíska kantmannsins Luis Sinisterra.
Ákvæðið sem um ræðir er kaupákvæði, og mun félagið kaupa hann frá Leeds fyrir 20 milljónir punda.
Ákvæðið sem um ræðir er kaupákvæði, og mun félagið kaupa hann frá Leeds fyrir 20 milljónir punda.
Það er ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessum tíðindum.
Romano segir að það sé verið að undirbúa öll skjöl og von sé á tilkynningu innan skamms.
Sinisterra er 24 ára gamall kantmaður sem var fenginn til Leeds frá Feyenoord fyrir 21 milljón punda sumarið 2022. Eftir að Leeds féll, þá fór hann á láni til Bournemouth og þar hefur hann spilað 15 leiki og skorað þrjú mörk.
Athugasemdir



