Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   fim 08. febrúar 2024 09:30
Elvar Geir Magnússon
Celtic skoraði sigurmark í uppbótartíma og náði þriggja stiga forystu
Brendan Rodgers segir að sitt lið hafi sýnt hugarfar meistara þegar það vann 2-1 útisigur á Hibernian í skosku úrvalsdeildinni í gær. Sigurmarkið kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Celtic er að heyja spennandi einvígi við Rangers um skoska meistaratitilinn og náði þriggja stiga forystu með sigrinum. Rangers á hinsvegar leik til góða.

Írski sóknarmaðurinn Adam Idah, sem kom á láni frá Norwich, spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik og hann skoraði bæði mörk Celtic. Hann kom liðinu yfir á 10. mínútu og skoraði sigurmarkið af vítapunktinum í blálokin.

Dylan Levitt jafnaði fyrir Hibernian í millitíðinni og sigurmark Celtic kom gegn gangi leiksins.

„Við vorum með stjórnina í fyrri hálfleik en við spiluðum ekki vel í þeim síðari. Hibs á hrós skilið en við þurfum og munum spila betur en þetta í framhaldinu," segir Rodgers.
Slapp
banner