Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Deco segir að Mbappe myndi veikja lið Barcelona
Mynd: EPA

Kylian Mbappe er mjög eftirsóttur en samningur hans við PSG rennur út eftir tímabilið.


Hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid en Liverpool hefur einnig verið nefnt til sögunnar.

Deco, yfirmaður fótboltamála hjá erkifjendum Real Madrid, Barcelona sagði í viðtali á spænsku útvarpsstöðinni Esport3 að Mbappe myndi veikja liðið.

„Við sjáum til. Það væri mistök að selja Frenkie De Jong eða Ronald Araujo og fá Kylian Mbappe. Það myndi gera liðið verra," sagði Deco.


Athugasemdir
banner
banner