Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 16:00
Elvar Geir Magnússon
„Framtíð Man Utd er björt með þá um borð“
Ungstirnin Kobbie Mainoo, Rasmus Höjlund og Alejandro Garnacho hafa verið að spila virkilega vel fyrir Manchester United og Erik ten Hag stjóri liðsins fór fögrum orðum um þá á fréttamannafundi í dag.

„Þeir njóta þess að spila saman, þetta er ævintýri sem þeir vilja upplifa saman. Þetta eru ungir leikmenn sem eru framtíð Manchester United, framtíðin er björt með þessa hæfileika um borð. Það þarf að þróa þá," segir Ten Hag.

„Þetta er félag sem vill afreka mikið, það vill vinna fleiri bikara og þessir strákar þurfa að stíga enn meira upp. Þeir þurfa að sýna svona frammistöðu gegn sterkustu andstæðingunum, skapa sömu ógn og klára tækifærin sem þeir fá."

Manchester United er í sjötta sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið heimsækir Aston Villa á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner