Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrsta tap Atletico á heimavelli í rúmt ár

Atletico Madrid tapaði fyrri leiknum í undanúrslitum spænska konungsbikarsins í gær þegar liðið fékk Athletic Bilbao í heimsókn.


Leiknum lauk með 1-0 sigri Bilbao en eina markið skoraði Álex Berenguer úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

Þetta er fyrsta tap Atletico síðan liðið tapaði gegn Barcelona 1-0 í janúar á síðasta ári. Liðið hafði aðeins gert tvö jafntefli en bæði skiptin var það gegn Getafe í deildinni.

Alvaro Morata hélt að hann hefði fengið tækifæri til að jafna metin undir lokin þegar hann fékk vítaspyrnu en atvikið var skoðað í VAR og hann var að lokum dæmdur rangstæður í aðdragandanum.


Athugasemdir
banner
banner