Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
ÍA fær markvörð frá Trínidad og Tóbagó
Kvenaboltinn
Mynd: ÍA

Klil Elyada Kemba Keshwar hefur skrifað undir samning við ÍA út næsta tímabil en félagið bíður eftir því að hún fái keppnisleyfi.

ÍA leikur í Lengjudeildinni í sumar en liðið vann sig upp um deild eftir að hafa endað í 2. sæti í 2. deild síðasta sumar.


Klil er markvörður og á landsleiki fyrir landslið Trínidad og Tobagó.

Hún kemur úr Bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék með St. Francis háskólanum í New York og Mount St. Mary's í Maryland.

Hún er með metið í báðum skólum í að halda hreinu.

„Klil er góður alhliða markvörður sem nýtir hæð sýna vel inn í teignum. Velkomin til ÍA," segir í tilkynningu frá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner