Inter Miami hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að stuðningsmenn og skipuleggjendur í Hong Kong brugðust illa við því að Lionel Messi hafi ekki spilað með Miami liðinu gegn úrvalsliði Hong Kong á dögunum.
Það var ákveðið á síðustu stundu að Messi og Luis Suarez væru ekki leikfærir og spiluðu því ekkert í leiknum.
„Þrátt fyrir bestu fyrirætlanir okkar skiljum við að það hafi verið ósætti yfir fjarveru Lionel Messi og Luis Suárez í leiknum á sunnudaginn og okkur þykir leitt að leikmennirnir tveir gátu ekki tekið þátt,“ segir í yfirlýsingunni.
„Við áttum okkur líka á því að stuðningsmenn í Hong Kong hafi verið ósátt að ákvörðunin hafi verið tekin seint. Okkur finnst nauðsynlegt að segja að meiðsli er því miður partur af okkar fallega leik og heilsa leikmanna verður að vera í fyrsta sæti."
Þremur dögum síðar kom Messi inn á á 60. mínútu í leik Inter Miami gegn japanska liðinu Vissel Kobe í Tókýó þar sem völlurinn var hálftómur.

