Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - Grannaslagur fyrir norðan og Lengjubikar kvenna hefst
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þrír leikir eru á dagskrá í Lengjubikarnum í dag. Grannaslagur fyrir norðan, Afturelding fer í Akraneshöllina og Lengjubikar kvenna fer fram.


Kvöldið byrjar í Boganum á Akureyri þar sem KA og Dalvík/Reynir mætast.

KA hóf leik í keppninni fyrir tæpum mánuði síðan þegar liðið tapaði gegn Aftureldingu en Dalvík/Reynir er að fara spila sinn fyrsta leik. Afturelding heimsækir síðan ÍA síðar um kvöldið. ÍA er einnig að hefja leik í kvöld.

Keppni í Lengjubikar kvenna hefst í kvöld á leik Þróttar og FH í Egilshöll.

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
19:15 KA-Dalvík/Reynir (Boginn)
20:00 ÍA-Afturelding (Akraneshöllin)

Lengjubikar kvenna - A-deild, riðill 2
20:15 Þróttur R.-FH (Egilshöll)


Athugasemdir
banner
banner