Þróttur R. 2 - 5 FH
0-1 Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('9 )
0-2 Snædís María Jörundsdóttir ('32 )
0-3 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('65 )
1-3 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('77 )
1-4 Hildur Katrín Snorradóttir ('82 )
2-4 Erla Sól Vigfúsdóttir ('84 , Sjálfsmark)
2-5 Aldís Tinna Traustadóttir ('90 )
Keppni í A deild Lengjubikars kvenna hófst í kvöld þegar Þróttur fékk FH í heimsókn.
Gestirnir komust yfir snemma leiks þegar Elísa Lana Sigurjónsdóttir skoraði. Snædís María Jörundsdóttir bætti öðru markinu við áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir bætti síðan þriðja markinu við áður en Þróttur náði að svara með tveimur mörkum.
Aldís Tinna Traustadóttir gulltryggði hins vegar sigur FH með marki undir lok leiksins.
FH fær ÍBV í heimsókn í næstu umferð þann 17. febrúar og Þróttur fær Stjörnuna í heimsókn þann 15. febrúar.

