KA 3 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Daníel Hafsteinsson ('35 )
1-1 Áki Sölvason ('45 )
2-1 Daníel Hafsteinsson ('73 )
3-1 Sveinn Margeir Hauksson ('90 , Mark úr víti)
Rautt spjald: Rúnar Helgi Björnsson , Dalvík/Reynir ('90)
KA vann sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í dag þegar liðið mætti Dalvík/Reyni í Boganum á Akureyri í kvöld.
Daníel Hafsteinsson kom liðinu yfir eftir rúmlega hálftíma leik en Áki Sölvason jafnaði metin fyrir Dalvík/Reyni undir lok fyrri hálfleiks.
Daníel var aftur á ferðinni þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka þegar hann skoraði og kom KA mönnum aftur í forystu.
Það var síðan í uppbótatíma þegar Rúnar Helgi Björnsson leikmaður Dalvíkurliðsins fékk að líta rauða spjaldið. Sveinn Margeir Hauksson gulltryggði KA sigur með marki úr vítaspyrnu.
Þetta er annar leikur KA í mótinu en liðið tapaði gegn Aftureldingu í fyrsta leik. KA er á toppnum með þrjú stig en Dalvík/Reynir var að spila sinn fyrsta leik og situr á botninum.


