ÍA 5-2 Afturelding
Mörk ÍA: Viktor Jónsson x2, Marko Vardic x2, Steinar Þorsteinsson
Mörk Aftureldingar: Patrekur Orri Guðjónsson, Valgeir Árni Svansson
Það var markaregn í Akraneshöllinni í kvöld þegar ÍA fékk Aftureldingu í heimsókn í Lengjubikarnum.
ÍA sigraði með fimm mörkum gegn tveimur Viktor Jónsson og Marko Vardic skoruðu tvö mörk hvor fyrir ÍA og Steinar Þorsteinsson skoraði eitt.
Patrekur Orri Guðjónsson og Valgeir Árni Svansson skoruðu mörk Aftureldingar.
ÍA jafnar Aftureldingu og KA að stigum en ÍA mætir KA á Akureyri þann 16. febrúar í næstu umferð. Afturelding heimsækir Víking sama dag.
Athugasemdir


