Jesse Lingard er loksins búinn að finna sér nýtt félag en hann skrifaði nýverið undir samning við FC Seoul í Suður-Kóreu.
Lingard, sem er 31 árs Englendingur, hafði verið án félags síðan síðasta sumar þegar samningur hans við Nottingham Forest rann út.
Hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Man Utd þar sem hann er uppalinn. Hann var hjá United á árunum 2000-2022 og lék alls 232 leiki með United í öllum keppnum og skoraði 35 mörk.
Hans besta tímabil var 2017-18 þegar hann skoraði þrettán mörk í 48 leikjum. Lingard á að baki 32 leiki fyrir enska landsliðið en hefur ekki verið í hópnum undanfarin þrjú ár.
Lingard sat fyrir svörum á fréttamannafundi í Suður-Kóreu í vikunni og þar sagðist hann hafa hafnað mörgum tilboðum áður en hann samdi í Suður-Kóreu.
„Ég fékk mörg tilboð en FC Seoul sýndi mikla ástríðu gagnvart mér. Menn frá félaginu flugu til Manchester til að horfa á mig æfa og þeir komu til mín með samning á blaði. Þeir vildu gríðarlega mikið fá mig," sagði Lingard sem ætlar að njóta þess að kynnast nýrri menningu. Hann stefnir á að vinna bikar á meðan hann er í Suður-Kóreu.
Athugasemdir


