Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mainoo að fá nýjan samning hjá Man Utd

Hinn 18 ára gamli Kobbie Mainoo hefur komið gríðarlega sterkur inn í lið Manchester United á þessari leiktíð.


Hann hefur spilað 13 leiki og skorað tvö mörk en hann opnaði markareikninginn gegn Newport í enska bikarnum og nokkrum dögum síðar bætti hann öðru markinu við gegn Wolves í úrvalsdeildinni.

Fabrizio Romano greinir frá því að leikmaðurinn sé í viðræðum við Man Utd um nýjan samning en núgildandi samningur hans gildir til ársins 2027.

Hann skrifaði undir samninginn fyrir ári síðan.


Athugasemdir
banner
banner