Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   fim 08. febrúar 2024 17:00
Elvar Geir Magnússon
Martínez mjög vonsvikinn en er bardagamaður
„Þetta er auðvitað bakslag," segir Erik ten Hag um meiðsli varnarmannsins Lisandro Martínez. Argentínumaðurinn verður frá í að minnsta kosti átta vikur vegna meiðsla í liðþófa í hné.

„Licha var mættur aftur og maður sá strax mikilvægi hans fyrir liðið, hann er með mikla tæknilega getu og öflugt hugarfar," segir Ten Hag.

„Hann er mjög vonsvikinn en hann er bardagamaður. Hann mun snúa aftur sterkari til baka og spila áður en tímabilinu lýkur. Sem lið þá þurfum við að fylla hans skarð og við höfum leikmenn til að gera það."

Ljóst er að þessi meiðsli munu aftur setja Harry Maguire í stærra hlutverk í liðinu.

Aaron Wan-Bissaka hefur verið frá síðustu þrjá leiki vegna meiðsla og varð fyrir bakslagi á æfingu í dag. Tyrell Malacia og Mason Mount eru áfram á meiðslalistanum.

Manchester United er í sjötta sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið heimsækir Aston Villa á sunnudag.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner