Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   fim 08. febrúar 2024 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mbappe líklega ekki með gegn Hákoni og félögum

Kylian Mbappe verður líklega ekki með PSG þegar liðið fær Lille í heimsókn í frösnku deildinni um helgina.


Mbappe skoraði fyrsta mark PSG í 3-1 sigri á Brest í franska bikarnum í gær en hann meiddist þegar Lillian Brassier varnarmaður Brest braut á honum en varnarmaðurinn fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt í kjölfarið.

Meiðslin eru ekki talin alvarleg en líklegt þykir að Luis Enrique stjóri liðsins muni hvíla hann fyrir leik liðsins gegn Real Sociedad á heimavelli í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.

PSG er með átta stiga forystu í frönsku deildinni en Lille er í 4. sæti 12 stigum á eftir. Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson leikur með Lille en hefur ekki komið við sögu í þremur síðustu leikjum liðsins.


Slapp
banner
banner