Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ótrúleg tölfræði hjá Rodri
Mynd: EPA

Rodri er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Manchester City en langt er liðið síðan hann hefur tapað leik í ljósbláu treyjunni.


Þessi 27 ára gamli miðjumaður hefur spilað 53 leiki í röð án þess að tapa en síðasta tapið hans kom í febrúar á síðasta ári þegar Manchester City tapaði gegn Tottenham.

City hefur tapað þremur leikjum á þessu tímabili en Rodri var í banni í öllum leikjunum. Þá var hann einnig í banni þegar City féll úr leik í enska deildabikarnum eftir tap gegn Newcastle.

Þá hefur hann unnið fimm titla síðan hann tapaði síðast gegn Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner
banner