Það vakti athygli að Thiago Silva var ekki í byrjunarliði Chelsea þegar liðið vann Aston Villa í enska bikarnum í gær.
Silva komst í fréttirnar eftir 4-2 tap liðsins gegn Wolves um síðustu helgi en konan hans tjáði sig á samfélagsmiðlum þar sem hún virtist vera að kalla eftir því að Mauricio Pochettino yrði rekinn.
Pochettino greindi frá því í aðdraganda leiksins gegn Aston Villa að þeir hafi rætt málin sín á milli.
Hann var síðan spurður að því fyrir leikinn í gær hvers vegna Silva hafi ekki verið valinn í byrjunarliðið.
„Af hverju ertu að spurja mig að því? Ég er fagmaður og þjálfari og vel alltaf leikmennina miðað við frammistöðu og jafnvægi. Ég held ég skilji spurninguna en ég vil halda ró minni því ég þarf að vera fagmaður og taka ákvörðun," sagði Pochettino.
Fréttamaðurinn spurði hann enn frekar út í málið þá svaraði hann einfaldlega: „Svarið mitt var ljóst er það ekki?"



