Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   fim 08. febrúar 2024 10:30
Elvar Geir Magnússon
Soulé í ensku úrvalsdeildina? - Sagði nei við ítalska landsliðið
Soulé gæti yfirgefið Juventus í sumar.
Soulé gæti yfirgefið Juventus í sumar.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Vængmaðurinn Matias Soulé útilokar ekki að yfirgefa Juventus í sumar en þessi tvítugi leikmaður hefur skorað sjö mörk í 21 leik fyrir Frosinone í ítölsku A-deildinni á tímabilinu. Hann er hjá félaginu á lánssamningi.

Eftir tímabilið snýr hann aftur til Juventus en ítalskir fjölmiðlar segja að félagið muni líklega selja hann í sumar til að jafna út bókhaldið og skapa fjármagn til leikmannakaupa.

Soulé hefur verið orðuð við ensk úrvalsdeildarfélög og þá hafnaði hann möguleika á að fara til Sádi-Arabíu í janúar.

„Þetta tilboð frá Al-Ittihad kom óvænt upp og ég talaði strax við fjölskyldu mína. Ég vissi samt strax hvað væri rétt í stöðunni fyrir minn feril, vera áfram hjá Frosinone og hjálpa liðinu í fallbaráttunni," segir Soulé í viðtali við Gazzettuna.

Soulé segist ekki hafa tekið ákvörðun hvar hann muni spila á næsta tímabili. Hann hefur einnig verið orðaður við Atalanta.

„Ég mun fyrst snúa aftur til Juventus og svo skoða stöðuna. Þetta er í höndum Juventus. Atalanta er öflugt lið. Ég hef bætt mig hjá Frosinone og liðsstemningin er öflug."

Soulé er frá Argentínu en er einnig með ítalskt vegabréf. Hann hafnaði ítalska landsliðinu fyrr í vetur. Hann segir það hafa verið erfiða ákvörðun.

„Luciano Spalletti landsliðsþjálfari kom og spjallaði við mig. Ég var stressaður. En hann skildi mína afstöðu og það var þægilegt að tala við hann," segir Soulé sem bíður eftir kallinu frá argentínska landsliðinu.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
14 Genoa 33 9 10 14 39 46 -7 37
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Pisa 33 2 13 18 24 59 -35 19
20 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
Slapp
banner
banner
banner