Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sverrir segir leikmann Íslendingafélagsins Lyngby hafa komið mest á óvart
Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Sverrir Ingi Ingason, miðvörður íslenska landsliðsins, segir að einn ákveðinn sóknarmaður hafi komið sér mikið á óvart í dönsku úrvalsdeildinni.

Sverrir Ingi gekk í raðir Midtjylland síðasta sumar og hefur spilað algjört lykilhlutverk fyrir liðið.

Eini tapleikur liðsins með Sverri í vörninni hingað til kom gegn Íslendingaliði Lyngby. Sverrir segir að Frederik Gytkjær hafi heillað sig mikið.

„Sá sem hefur komið mér mest á óvart er Gytkjær, sóknarmaður Lyngby. Hann er ótrúlega gáfaður á margan hátt og það er ótrúlega erfitt að spila gegn honum," sagði Sverrir við Tipsbladet.

„Hann er með lágan þyngdarpunkt og það gerir það ótrúlega erfitt að spila gegn honum."

„Það eru margir góðir leikmenn í þessari deild en Gytkjær hefur komið mér mest á óvart."

Andri Lucas Guðjohnsen, Gylfi Þór Sigurðsson, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon eru liðsfélagar Gytkjær hjá Lyngby en Freyr Alexandersson þjálfaði hann áður en hann tók við Kortrijk fyrir stuttu síðan.
Athugasemdir
banner
banner