Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 12:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thiago aftur á meiðslalistanum eftir fimm mínútna innkomu
Thiago Alcantara.
Thiago Alcantara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thiago Alcantara, miðjumaður Liverpool, sneri aftur eftir löng meiðsli í stórleiknum gegn Arsenal um síðustu helgi.

En lukkan leikur ekki við Thiago sem er aftur kominn á meiðslalistann.

The Times segir frá því að Thiago sé að glíma við vöðvameiðsli eftir leikinn gegn Arsenal.

Ekki kemur fram hversu lengi hann verður frá en hann verður líklega ekki með í næstu leikjum.

Thiago, sem er 32 ára gamall, hefur aðeins spilað í einum leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann var einnig mikið meiddur á síðustu leiktíð.

Liverpool er á toppi deildarinnar en liðið er í harðri baráttu við Arsenal og Manchester City.
Athugasemdir
banner