Það eru mikil vandræði hjá Roy Hodgson og Crystal Palace. Liðið er í 14. sæti deildarinnar og hefur aðeins unnið tvo af síðustu 12 leikjum.
Meiðslavandræði eru einnig að herja á liðið en Marc Guehi og Michael Olise þurftu að fara af velli í tapi gegn Brighton í vikunni. Þá meiddist Eberechi Eze í leik liðsins gegn Sheffield United í síðustu viku.
Hodgson hefur staðfest að þeir verði ekki klárir í slaginn fyrir leik liðsins gegn Chelsea á mánudaginn.
„Það er ljóst að þetta er mikið áfall. Olise er alvarlega meiddur enn eina ferðina sem er hrikalegt fyrir hann og félagið. Það fór margt úrskeðis en það gat allt farið í rétta átt en við getum ekki litið í baksýnisspegilinn," sagði Hodgson.
„Meiðsli gerast, það er bara þannig. Þau komu öll í þessum leik og nú erum við að reyna að finna ástæður þess en þetta hefði getað gerst hvenær sem er."


