Sky Sports segir frá því að aukin pressa sé að myndast gagnvart því að FIFA banni Ísrael frá fótboltaviðburðum, líkt og gert var við Rússland á sínum tíma. Þetta er vegna þeirra stríðsátaka sem standa nú yfir á Gaza.
Þann 21. mars leikur Ísland gegn Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti á EM í Þýskalandi. Leikurinn fer fram í Búdapest í Ungverjalandi þar sem Ísrael átti að eiga heimaleik en fær ekki að spila í heimalandi sínu.
Ali bin Hussein, formaður fótboltasambands Jórdaníu og forseti fótboltasambands Vestur-Asíu, skrifaði bréf til FIFA þar sem hann biðlaði til þess að Ísrael yrði dæmt úr leik. Á bak við bréfið eru tólf þjóðir í Mið-Austurlöndum, þar á meðal skrifar formaður fótboltasambandsins í Palestínu undir það.
Í bréfinu eru önnur knattspyrnusambönd um heiminn allan hvött til að taka þátt í afstöðu gegn Ísrael.
„Við í fótboltasambandi Vestur-Asíu, skorum á FIFA, fótboltasamböndin og aðildarfélögin að sameinast okkur í að taka afgerandi afstöðu gegn grimmdarverkum sem framin eru í Palestínu og gegn stríðsglæpum á Gaza, með því að fordæma morð á saklausa borgara, þar á meðal leikmenn, þjálfara, dómarar og embættismenn," segir í bréfinu.
Fótboltasambandið í Ísrael hvetur aftur á móti FIFA til að taka ekki mikið mark á bréfinu. „Ég treysti FIFA til að blanda ekki saman fótbolta og pólitík," sagði Niv Goldstein, framkvæmdastjóri fótboltasambandsins í Ísrael. „Okkar draumur er að komast á Evrópumótið 2024."
Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessa máls en eins og áður segir, þá spilar Ísrael við Ísland í gríðarlega mikilvægum leik í næsta mánuði. Ekki er enn útilokað að hætt verði við þann leik og Ísrael bannað úr keppni.
Athugasemdir



