Toti Gomes hefur skrifað undir nýjan fimm og hálfs árs samning við Wolves.
Þessi 25 ára gamli varnarmaður gekk til liðs við félagið frá portúgalska liðinu Estoril árið 2020. Hann var lánaður til Grasshoppers í næst efstu deild í Sviss þar sem liðið tryggði sér sigur í deildinni og um leið þátttökurétt í efstu deild.
Wolves kallaði hann til baka í janúar 2022. Hann spilaði mest megnis vinstri bakvörð á síðustu leiktíð en hefur verið fastamaður undanfarið í þriggja hafsenta kerfi undir stjórn Gary O'Neil.
Þessi 25 ára gamli Portúgali var fyrst valinn í landsliðið fyrir leiki gegn Bosníu og Íslandi í undankeppni EM í maí en lék sinn fyrsta leik í nóvember gegn Liechtenstein.
Our 24, staying until '29.
— Wolves (@Wolves) February 8, 2024
?? @TotiGomes23 pic.twitter.com/zW0rMNRQGb
Athugasemdir




