Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 16:04
Elvar Geir Magnússon
Væsir ekki um enska landsliðið í Þýskalandi - 45 golfholur á svæðinu
Herbúðir enska landsliðsins á EM í Þýskalandi verður á Golfresort Weimarer.
Herbúðir enska landsliðsins á EM í Þýskalandi verður á Golfresort Weimarer.
Mynd: Spa & GolfResort Weimarer Land
Enska landsliðið mun dvelja á fimm stjörnu golfsetri á meðan EM í Þýskalandi stendur yfir í sumar. Herbúðir liðsins verða Golfresort Weimarer sem er rétt hjá bænum Blankenhain.

Setrið er einum og hálfum tíma frá Leipzig en þar eru 94 svefnherbergi, tveir átján holu golfvellir, einn níu holu og frábær líkamsræktar og spa aðstaða.

Þar eru einnig tveir fótboltavellir í fullri stærð og fullt af afþreyingarmöguleikum eins og snóker, borðtennis og fótboltaborð.

Hér má sjá myndir frá svæðinu:
Athugasemdir
banner
banner