Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 15:00
Elvar Geir Magnússon
Viðurkennir að það þurfi að bæta VAR - „Höfum verk að vinna“
Enska úrvalsdeildin viðurkennir að bætinga sé þörf á VAR myndbandsdómgæslukerfinu, of margar skoðanir séu og þær taki of langan tíma. Upplifun stuðningsmanna af VAR sé of neikvæð.

Tony Scholes, yfirmaður fótboltamála hjá deildinni, ræddi við fjölmiðla. Hann gat ekki staðfest hvort sjálfvirk rangstöðutækni verði tekin í notkun á næsta tímabili til að stytta tímann sem tekur að taka ákvarðanir.

„Mistökum hjá VAR hefur fækkað frá síðasta tímabili og tæknin virkar enn til að styðja við dómarana á vellinum. En það er alveg ljóst að í heimi VAR er ekki allt fullkomið. Við erum meðvituð um það og vitum að það er verk að vinna," segir Scholes.

„Það tekur of langan tíma að skoða hlutina í VAR og það eru of margar skoðanir. Það er skiljanlegt að dómararnir taki sér tíma vegna þeirrar pressu sem er á þeim. En þetta tekur of langan tíma og hefur áhrif á flæðið í leiknum."

„Þá er upplifun áhorfenda á vellinum alls ekki nægilega góð þegar VAR skoðanir eru í gangi. Þetta dregur úr ánægju stuðningsmanna af leiknum og við vitum að það þarf að breytast."
Athugasemdir
banner