Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 21:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Viktor Guðberg framlengir við Grindavík
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Guðberg Hauksson hefur framlengt samning sinn við Grindavík til næstu tveggja ára.


Viktor er 23 ára gamall varnarmaður og er uppalinn hjá Grindavík.

Hann hefur leikið 104 leiki með liðinu og skoraði níu mörk. Hann lék 20 leiki með liðinu síðasta sumar og skoraði eitt mark sem kom í Mjólkurbikarnum þegar liðið lagði Val.

Það eru erfiðir tímar hjá Grindvíkingum en þetta var aldrei spurning í augum Viktors.

„Við erum mjög ánægð með að Viktor verði áfram hjá okkur í Grindavík. Það er mikið ánægjuefni að okkar heimamenn haldi tryggð við félagið og taki slaginn á óvissutímum. Viktor er mikill Grindvíkingur og frábær liðsmaður,“ segir Ólafur Már Sigurðsson, formaður meistaraflokksráðs hjá Grindavík.

„Það var aldrei spurning þegar kom að því að endursemja við Grindavík. Framundan er mjög krefjandi og mikilvægt tímabil fyrir klúbbinn þar sem náttúruhamfarir ganga yfir í Grindavík og vil ég takast á við það með mínum uppeldisklúbbi. Ég finn fyrir miklum metnaði hjá stjórn og þjálfarateymi og trúi ég því að við munum gera mjög góða hluti í sumar,“ sagði Viktor eftir undirskriftina.

Grindavík hafnaði í 6. sæti í Lengjudeildinni síðasta sumar.


Athugasemdir
banner