Viktor Örlygur Andrason fór af velli vegna meiðsla í lok leik Víkings og KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Viktor haltraði af velli og fór eftir leik í myndatöku. Þar kom í ljós að rifa er á liðbandi í hné og verður hann frá í rúmlega mánuð.
Viktor haltraði af velli og fór eftir leik í myndatöku. Þar kom í ljós að rifa er á liðbandi í hné og verður hann frá í rúmlega mánuð.
„Ég verð klár áður en tímabilið byrjar," sagði Viktor við Fótbolta.net í dag.
Viktor bar fyrirliðabandið í leiknum sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni sem KR svo vann. Víkingi var þó dæmdur sigur þar sem KR notaði ólöglegan leikmann.
Viktor er 24 ára miðjumaður sem hefur leikið með Víkingi allan sinn feril. Hann á að baki fjóra A-landsleiki. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í öllum fimm bikarleikjum Víkings og 22 af 27 leikjum í Bestu deildinni.
Athugasemdir



