Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   fös 09. febrúar 2024 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Afríkukeppnin um helgina - Úrslitastund
Mynd: EPA

Úrslitin ráðast í Afríkukeppninni um helgina en heimamenn frá Fílabeinsströndinni mæta Nígeríu í úrslitum á sunnudaginn.


Fyrst verður spilað um bronsið en þar mætast Suður-Afríka og Kongó. Leikurinn fer fram annað kvöld.

Fílabeinsströndin hefur farið fjallabaksleiðina í úrslitin sem fram á sunnudagskvöldið.

Liðið komst óvænt áfram sem eitt af bestu liðunum sem höfnuðu í 3. sæti í sínum riðli. Þá var búið að reka þjálfarann en liðið er nú komið alla leið í úrslit og það verður saga til næsta bæjar ef liðið vinnur mótið á heimavelli.

laugardagur 10. febrúar
20:00 Suður-Afríka - Kongó

sunnudagur 11. febrúar
20:00 Nígería - Fílabeinsströndin


Slapp
banner