Diego Costa er genginn til liðs við brasilíska félagið Gremio á frjálsri sölu.
Þessi 35 ára gamli framherji átti góðan feril í Evrópu en hann lék með liðum á borð við Chelsea og Atletico Madrid auk þess að hafa spilað eitt tímabil með Wolves í úrvalsdeildinni.
Eftir Evrópuævintýrið hélt leiðin til Brasilíu þar sem hann samdi við Botafogo síðasta sumar þar sem hann lék 12 leiki og skoraði þrjú mörk.
Hann hefur nú fært sig um set í Brasilíu en Luis Suarez lék áður með Gremio áður en hann gekk til liðs við Inter Miami í janúar.
Athugasemdir



