Gleðilegan föstudag, flott helgi í boltanum framundan. Toney, Mbappe, Zubimendi, Salah, Williams, Davies, Onana og fleiri í slúðurpakkanum.
Manchester United hefur áhuga á enska sóknarmanninum Ivan Toney (27) en verðmetur hann á 70 milljónir punda og ætlar ekki í verðstríð um hann. (Star)
Erik ten Hag stjóri Manchester United segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar verðandi framtíð Norður-írska varnarmannsins Jonny Evans (36) eða franska miðvarðarins Raphael Varane (30). (Express)
Javier Tebas forseti La Liga segir að það séu 55-60% líkur á því að Real Madrid fái franska framherjann Kylian Mbappe (25) frá Paris St-Germain. (Mirror)
Liverpool er tilbúið að berjast við Arsenal um spænska miðjumanninn Martin Zubimendi (25) frá Real Sociedad. (Football Transfers)
Al-Ittihad í Sádi-Arabíu mun reyna aftur við egypska framherjann Mohamed Salah (31) hjá Liverpool í sumar, eftir að hafa gert misheppnaða tilraun síðasta sumar. (ESPN)
AC Milan íhugar að ráða Graham Potter, fyrrum stjóra Brighton og Chelsea, sem stjóra sinn eftir tímabilið. (TalkSport)
Manchester United hefur átt viðræður við Kobbie Mainoo (18) um nýjan samning en táningurinn hefur verið einn besti leikmaður United undanfarnar vikur. (Fabrizio Romano)
Arsenal hefur verið að skoða spænska vængmanninn Nico Williams (21) hjá Athletic Bilbao. (Mirror)
Ganverski miðjumaðurinn Thomas Partey (30) hjá Arsenal er á óskalista Juventus. (Fichajes)
Real Madrid hefur mikinn áhuga á kanadíska vinstri bakverðinum Alphonso Davies (23) hjá Bayern München en mun fá samkeppni frá Manchester City og Liverpool. (HITC)
Newcastle United hefur áhuga á belgíska miðjumanninum Amadou Onana (22) hjá Everton. (Football Insider)
Pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski (35) er með samning við Barcelona sem rennur út 2026 og vill vera hjá félaginu út hann. (Sport)
Liverpool býst við því að spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara (32) yfirgefi félagið í sumar. (Football Insider)
AC Milan er meðal ítalskra félaga sem hafa sýnt pólska varnarmanninum Jakub Kiwior (23) í sumar. (Evening Standard)
Blackburn Rovers mun væntanlega ráða John Eustace fyrrum stjóra Birmingham til að taka við af Jon Dahl Tomasson. (Mail)
Sænski varnarmaðurinn Emil Krafth (29) ætlar að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við Newcastle. (FotbollDirekt)
Athugasemdir



