Gary Neville og Roy Keane náðu mögnuðum árangri á sínum tíma með Manchester United
Þeir stjórna hlaðvarpsþættinum Stick to Football ásamt Jamie Carragher og Ian Wright en þeir ræddu ansi athyglisverða hluti.
Þeir voru báðir sammála um að margir andstæðingar þeirra á sínum tíma væru líklega að taka inn ólögleg efni, þá sérstaklega leikmenn úr ítölskum liðum.
„Ég held að það hafi verið nokkur lið sem við spiluðum á móti sem voru ekki hrein. Við hugsuðum það á sínum tíma. Okkur fannst eitthvað athugavert við líkamlegu hliðina. Við vorum í formi, við drukkum ekki svo við hugsuðum: Þetta passar ekki, það er eitthvað í gangi hér. Ég hugsaði eftir leik gegn ítölsku liði að það væri ekki allt með feldu," sagði Neville.
„Þegar við spiluðum gegn ákveðnum liðum var ég að ganga af velli og maður var búinn á því. Ég man eftir þessu, ég horfði á leikmennina sem ég var að spila á móti, nokkur ítölsk lið, það leit út fyrir að þeir hafi ekki einu sinni verið að spila leik," sagði Keane.




