Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fös 09. febrúar 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pulisic: Besta andrúmsloftið er klárlega á San Siro
Mynd: EPA

Christian Pulisic sagði í viðtali við GQ að engin stemning jafnist á við stemninguna á San Siro, heimavelli AC Milan.


Pulisic gekk til liðs við Milan í sumar frá Chelsea og spilað á öllum stóru völlunum á Englandi auk þess að hafa spilað með Dortmund en stuðningsmenn þýska liðsins eru þekktir fyrir frábæra stemningu.

„Maður finnur fyrir orkunni og ástríðunni frá öllum á vellinum. San Siro er sérstakur völlur. Ég hef verið í góðu andrúmslofti í Evrópu en þetta er klárlega það besta," sagði Pulisic.

Pulisic hefur leikið 29 leiki á tímabilinu, skorað sjö mörk og lagt upp sex.


Athugasemdir
banner
banner
banner