Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   fös 09. febrúar 2024 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Southgate: Hugsa bara um að vinna EM

Samningur Gareth Southgate við enska fótboltasambandið rennur út í lok ársins en hann vildi lítið gefa upp varðandi framhaldið.


Dregið var í riðla Þjóðadeildarinnar í gær þar sem England mun mæta Írlandi, Finnlandi og Grikklandi.

Southgate var spurður að því í kjölfarið á drættinum hvort hann yrði áfram með enska landsliðið á næsta ári.

„Maður verður að sjá hvernig fer í sumar, svo einfalt er það. Ég veit hvað við getum afrekað. Eina sem ég er að hugsa um er að reyna að vinna EM með Englandi," sagði Southgate.

„Við verðum að sýna okkar besta andlit og maður verður að taka bestu ákvörðunina fyrir alla. Ég verð ekki í stöðu til að taka þessa ákvörðun fyrir mótið. Ef það yrði tekin ákvörðun fyrir myndi það skaða frammistöðuna, sama hver ákvörðunin yrði."


Slapp
banner
banner
banner