Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fös 09. febrúar 2024 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thiago búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Liverpool?
Thiago Alcantara.
Thiago Alcantara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fréttamaðurinn Neil Jones vekur athygli á því í dag að ferill spænska miðjumannsins Thiago hjá Liverpool sé mögulega á enda.

Thiago sneri aftur eftir löng meiðsli í stórleiknum gegn Arsenal um síðustu helgi.

En lukkan leikur ekki við Thiago sem er aftur kominn á meiðslalistann. Hann er að glíma við vöðvameiðsli.

Thiago, sem er 32 ára gamall, hefur aðeins spilað í einum leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann var einnig mikið meiddur á síðustu leiktíð.

Jones segir að meiðslin sem Thiago er að glíma við núna séu af alvarlegum toga og er búist við því að hann verði lengi frá. Samningur hans við Liverpool klárast eftir tímabilið og er hann mögulega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner