Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   fös 09. febrúar 2024 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tuchel spenntur fyrir toppslagnum - „Leverkusen er með gott lið"
Mynd: EPA

Það er stórleikur í þýska boltanum um helgina þegar Leverkusen fær Bayern í heimsókn.


Leikurinn fer fram annað kvöld en Leverkusen er með tveggja stiga forystu á Bayern á toppi deildarinnar en liðið hefur ekki tapað leik undir stjórn Xabi Alonso á tímabilinu.

Thomas Tuchel er spenntur fyrir leiknum en hann hrósaði Leverkusen fyrir frábært tímabil hingað til.

„Þetta er í okkar höndum svo viðð verðum að einbeita okkur af okkur sjálfum. Leverkusen er með gott lið og eru að spila vel svo ég er ekki hissa. Tímabilið er langt," sagði Tuchel.


Slapp
banner
banner