Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
   fim 09. júní 2016 09:29
Elvar Geir Magnússon
Annecy
Gylfi: Yrði skandall ef Portúgal myndi tapa stigum
Icelandair
Gylfi á æfingu með landsliðinu í gær.
Gylfi á æfingu með landsliðinu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson ræddi við fjölmiðla fyrir æfingu íslenska landsliðsins í Annecy í morgun. Evrópumótið fer af stað á morgun en Ísland á fyrsta leik gegn Portúgal á þriðjudag.

Við byrjuðum að spyrja Gylfa út í hvað hann vill sjá frá íslenska landsliðinu á þessu móti?

„Við viljum vinna einhverja leiki, það væri fínt. Við erum í erfiðum riðli og byrjum á mjög erfiðum leik gegn Portúgal. Það er þannig lagað séð engin pressa á okkur í fyrsta leik sem er gott. Það yrði algjör skandall ef Portúgal myndi tapa einhverjum stigum í þeim leik," segir Gylfi.

„Við verðum að verjast mjög vel og gera sömu hluti og við gerðum í undankeppninni."

„Umræðan hefur snúist um hversu fámenn við erum en það verða jafnmargir í báðum liðum í leiknum á þriðjudag. Við þurfum að spila mjög vel og berjast fyrir hvern annan. Við erum að fara að mæta mjög góðu sóknarliði með frábæra einstaklinga."

Telur Gylfi að hann þurfi að vera í meiri varnargír en sóknargír gegn Portúgal.

„Nei ég held ekki. Aron sér oftast um meiri hlutann af því. Við verðum að sækja eitthvað í leiknum. Þá þarf ég að taka þá ábyrgð að fara svolítið fram á við."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner