Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 11:37
Kári Snorrason
Jón Dagur heldur aftur til Berlínar en framtíðin í óvissu - „Hafði engan áhuga að vera áfram í Brann“
Jón á eitt ár eftir af samningi hjá Hertha.
Jón á eitt ár eftir af samningi hjá Hertha.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þeir þurfa að fara í einhverja naflaskoðun hjá Brann ef þeir ætla sér að gera eitthvað.“
„Þeir þurfa að fara í einhverja naflaskoðun hjá Brann ef þeir ætla sér að gera eitthvað.“
Mynd: EPA
Jón Dagur Þorsteinsson yfirgaf á dögunum norska félagið Brann eftir að lánssamningur hans við félagið rann út. Jón fór til Brann á láni frá Herthu Berlín í Þýskalandi, þar sem hann hefur verið í takmörkuðu hlutverki.

Í viðtali við Fótbolta.net í nótt, eftir 3-0 tap Íslands gegn Argentínu í vináttulandsleik, sagði hann ekki vita hvað framtíðin bæri í skauti sér.

„Ég er að fara aftur til Hertha núna í sumar á undirbúningstímabil og svo skýrast mín mál eftir það. Ég veit ekkert hvað ég er að fara gera,“ sagði Jón Dagur og var spurður nánar út í stöðuna.

„Ég mun bara skoða það ef eitthvað kemur upp á borðið. Ég er samningsbundinn í eitt ár í viðbót og tek undirbúningstímabilið með þeim. Svo tek ég bara stöðuna, það er nóg eftir af glugganum og ég veit ekki almennilega hvar ég stend hjá þeim. Ég þarf að skoða það þegar ég mæti á svæðið.“

Þurfa að fara í naflaskoðun
Freyr Alexanderson var látinn fara sem þjálfari Brann eftir að Jón Dagur hafði spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Hann segist ekki hafa haft áhuga á að vera áfram hjá norska félaginu eftir brottrekstur Freys.

„Ég hef engan áhuga að vera áfram í Brann, sérstaklega eftir að Freysi fór. Ég hafði þvílíkt gaman af því að vinna með honum og kom mér þvílíkt á óvart að þeir létu hann fara. Sérstaklega hvernig hlutirnir höfðu verið hjá klúbbnum.

Það var mikið um meiðsli og eiginlega stórfurðulegt skipta um þjálfara. Þeir þurfa að fara í einhverja naflaskoðun hjá Brann ef þeir ætla sér að gera eitthvað,“
sagði Jón Dagur að lokum.
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Slapp
banner
banner
banner