Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
   sun 10. júlí 2016 21:32
Arnar Geir Halldórsson
Portúgal er Evrópumeistari 2016
Portúgal 1 - 0 Frakkland
1-0 Eder ('109 )

Portúgal er Evrópumeistari árið 2016 eftir ótrúlega dramatískan sigur á Frakklandi á Stade de France í París í kvöld.

Portúgalir urðu fyrir svakalegu áfalli snemma leiks þegar aðalstjarna liðsins, Cristiano Ronaldo, þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla.

Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma en heimamenn voru sterkari aðilinn og þurfti Rui Patricio oft að hafa sig allan við til að halda marki Portúgala hreinu.

Í framlengingunni reyndust Portúgalarnir sterkari því varamaðurinn Eder gerði út um leikinn með góðu skoti utan teigs, rúmum tíu mínútum fyrir leikslok.

Portúgal því Evrópumeistari í fyrsta skipti í sögunni en heimamenn sitja eftir með sárt ennið og silfur um hálsinn.
Slapp
banner