Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
   mán 11. ágúst 2014 22:00
Elvar Geir Magnússon
Kristján Guðmunds: Ég ætla að henda þessum leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vann Keflavík 2-0 í Pepsi-deildinni í kvöld en þessi sömu lið leika til úrslita í bikarnum næsta laugardag.

„Við komum sáttir inn í hálfleikinn, við áttum að vera búnir að skora. Seinni hálfleikur var langt í frá nægilega góður og við gefum þeim leikinn," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.

Þrír leikmenn liðsins sem voru á hættusvæði vegna spjalda voru utan hóps og engin áhætta tekin fyrir bikarúrslitaleikinn.

„Við erum settir í þá stöðu að spila tvo leiki fyrir aganefndarfund á morgun þar sem við erum með fjóra menn á spjaldi. Við létum þrjá þeirra spila á miðvikudaginn. Það var erfitt fyrir leikmennina."

„Þetta hafði gríðarleg áhrif á leikinn okkar á miðvikudaginn og þennan leik í dag. Félögin verða að finna leið í þessu og koma með tillögu á næsta KSÍ-þingi. Það er verið að tala um þetta ár eftir ár."

Hvernig ætlar Kristján að nýta þennan leik fyrir bikarúrslitin á laugardag?

„Ég ætla ekki að nýta þennan leik neitt. Ég ætla að henda honum. Ég er búinn að skamma strákana því seinni hálfleikur var ekki nægilega góður og of margir leikmenn sem tóku ekki þátt. Nú er þessi leikur búinn. Við ætlum að fara að skemmta okkur á laugardaginn."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner