David Coote, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, mætti í dómsal í Nottingham í dag. Hann er ákærður fyrir að gera óviðeigandi myndband barni.
Coote neitar sök í málinu. Hann mætti bara í dómsal til að staðfesta nafn sitt, fæðingardag og afstöðu sína í málinu.
Coote neitar sök í málinu. Hann mætti bara í dómsal til að staðfesta nafn sitt, fæðingardag og afstöðu sína í málinu.
Hann fær að ganga laus þangað til að hann þarf næst að mæta í dómsal þann 9. október næstkomandi.
Í breskum fjölmiðlum er sagt að málið sé í 'flokki A' en það er alvarlegasti flokkurinn þegar kemur að slíkum málum. Mál eru yfirleitt sett í 'flokk A' þegar börnum er nauðgað eða þau kynferðislega misnotuð af fullorðnum einstaklingum.
Myndbandið sem um ræðir er frá 2020.
Coote var settur til hliðar af enska fótboltasambandinu í fyrra eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hann fór ófögrum orðum um Jurgen Klopp, fyrrum stjóra Liverpool. Í kjölfarið birtist svo annað myndband þar sem hann sást neyta eiturlyfja og var hann þá settur til hliðar af UEFA.
Athugasemdir