Man Utd hefur áhuga á Valverde - Guehi gæti farið til Tottenham - Frank hefur líka áhuga á Collins
banner
   mið 01. október 2025 22:03
Brynjar Ingi Erluson
Joao Felix heldur áfram að skína með Al Nassr - Ronaldo ekki með
Joao Felix hefur verið frábær með Al Nassr
Joao Felix hefur verið frábær með Al Nassr
Mynd: Al-Nassr
Portúgalinn Joao Felix er áfram í fantaformi með Al Nassr sem lagði Al Zawraa, 2-0, í B-deild Meistaradeildarinnar í Asíu í kvöld.

Al Nassr var án Cristiano Ronaldo í keppninni annan leikinn í röð og tók Joao Felix ábyrgðina á að stýra sóknarleiknum.

Það gerði hann með stakri prýði og skoraði seinna mark liðsins sem var hans áttunda fyrir félagið.

Sádi-arabíska liðið er með fullt hús stiga eftir tvo leiki, en óvíst er hvort Ronaldo muni spila eitthvað með liðinu í keppninni fyrir áramót.

Álagsstýring á Portúgalanum sem fagnar 41. árs afmæli sínu eftir fjóra mánuði.


Athugasemdir